Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 13:58:19 (1859)

1999-11-18 13:58:19# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[13:58]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Um þetta atriði get ég svarað mjög skýrt og skorinort. Ég tel að á lögunum sem samþykkt voru 1993 hafi verið nokkrir meinbugir. Þar á meðal sá að það var ekki sólarlagsákvæði í þessu bráðabirgðaákvæði. Það er alveg ljóst, af því að sá sem hér stendur hefur unnið að endurskoðun laganna, að þeir sem þar hafa starfað gera allir ráð fyrir að inn í lögin komi sólarlagsákvæði að því er þetta bráðabirgðaákvæði varðar.