Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 15:20:43 (1888)

1999-11-18 15:20:43# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[15:20]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Nú hef ég 58 sekúndur til þess að svara þessu. Þetta er stórt deilumál og ég mun koma inn á það í lokaræðu minni. Á meðan hv. þm. bíður eftir svari mínu hér í lokaræðunni, því ég þarf meiri tíma heldur en 58 sekúndur til að svara því, þá bið ég hv. þm. að lesa í greinargerð þáltill. á bls. 15 og bls. 16 þar sem færð eru rök fyrir því að það er bjargföst skoðun okkar og trú að við höfum allar lagalegar heimildir til að halda áfram með þær framkvæmdir sem í var ráðist á sínum tíma.