Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Það er ekkert óeðlilegt við að iðnn. eða einhver önnur nefnd kynni áhuga sinn á að fá umsagnir almennings og vekji athygli á nýrri leið fyrir almenning til að koma sjónarmiðum á framfæri. Við það er ekkert óeðlilegt. Það er ekkert óeðlilegt við að almenningi sé gefinn kostur á að hafa beint samband við nefndina.
Hins vegar er óeðlilegt að hv. þm. skuli gera það tortryggilegt að ein nefnd, í tilefni þessa mikilvæga máls sem hér er til umræðu, veki sérstaka athygli á því til að efla tengsl við almenning og efla þannig lýðræðið í landinu. Það er óeðlilegt af hálfu hv. þm. að gera þetta tortryggilegt.
Ég velti því enn og aftur upp: Hvað fær hv. þm. til að fara í þessa undarlegu stellingu og gera jafneðlilegt mál tortryggilegt? Það gæti verið frammistaða Jóns Sigurðssonar sem gekk mjög vasklega fram í því að reyna að koma hér á stóriðju og hafði uppi mikinn blekkingaleik. Það gæti verið frammistaða hæstv. fyrrv. umhvrh. Össurar Skarphéðinssonar sem gaf út starfsleyfi fyrir Fljótsdalslínu I með góðum stuðningi og hvatningu hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur sem örfáum árum síðar telur málið vera í óeðlilegum farvegi. Það er von, herra forseti, að hv. þm. skuli vilja gera málið tortryggilegt og grípa til gamalkunnugra aðferða til að slá ryki í augu kjósenda.