Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt sem fram kom í máli hv. þm. Jóns Kristjánssonar að Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hefur lagt áherslu á tvennt: náttúruverndarsjónarmið og hin efnahagslegu rök. Það er rétt að við höfum lagt aukinn þunga á hin efnalagslegu rök þegar það rennur betur og betur upp fyrir okkur hvílíkt efnahagslegt og fjárhagslegt glapræði er hér á ferðinni. Það er rangt sem fram kom í máli hv. þm. að við gerum lítið úr efnahagslegum þætti málsins, þvert á móti leggjum við áherslu á hann. Við höfum vakið athygli á greinarskrifum virtra hagfræðinga í Frjálsri verslun, þar sem Sigurður Jóhannesson telur að 13 milljarða króna tap verði af Fljótsdalsvirkjun. Ég beini þeirri spurningu til hv. þm.: Hefur hann ekki áhyggjur af því (Forseti hringir.) að hann sé að skapa Austfirðingum valkost sem býður upp á að fjórði hver vinnandi maður á Austfjörðum vinni í álveri eða starfsemi henni tengdri?
(Forseti (GuðjG): Hv. þm. verða að virða tímamörkin því það eru margir sem vilja veita andsvör.)