Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég held mig við spurninguna, tímans vegna. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því að skapa nýja atvinnugrein á Austurlandi. Það eru til fyrirtæki, jafnvel í sveitarfélaginu þar sem þetta fyrirtæki á að rísa, jafnstór og þetta fyrirtæki á að vera sem hafa jafnmarga innan sinna vébanda. Það á ekki að reisa þetta fyrirtæki úti á eyðieyju heldur í öflugu sveitarfélagi þar sem það yrði ein stoð til viðbótar undir atvinnulífið.