Þuríður Backman (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Jón Kristjánsson beindi orðum sínum til mín og nefndi að stóriðjan skilaði arði sem við gætum síðan notað til þess að byggja upp. Jú, ég nefndi annað en stóriðju til að byggja upp atvinnulíf. Ég nefndi að það ætti að styrkja atvinnuþróunarfélögin sem mundu styrkja og koma á fót annarri starfsemi sem einnig mundi skila arði og atvinnu inn í fjórðunginn. Ég trúi því að atvinnuþróunarfélögin styðji ekki fyrirtæki öðruvísi en að þau séu arðvænleg og fleiri og smærri fyrirtæki inn í fjórðunginn eru ekki síður heppileg en ein stór álverksmiðja.
Ég nefndi líka að það bæri að styrkja framhaldsnám. Framhaldsnám skilar sér inn í atvinnulífið og styrkir atvinnulífið. Ég tala nú ekki um háskólanám. Það styrkir líka atvinnulífið og skapar störf á svæðinu.