Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil benda á í þessu sambandi að það er eins og hv. þm. sé þeirrar skoðunar að með því að fá þetta fyrirtæki inn í fjórðunginn þá muni verða allsherjardauði á öllum öðrum sviðum, (ÞBack: Nei.) að menn muni ekki gera nokkurn skapaðan hlut meira, það muni ekki verða byggð upp menntun eða nokkur skapaður hlutur og menn muni ekki skipta við atvinnuþróunarfélagið. Auðvitað mun þetta fyrirtæki efla þá starfsemi sem fyrir er í fjórðungnum sem er mjög fjölbreytt. Margt er þar vel gert. Ég er sannfærður um að þessi starfsemi mun hleypa lífi í margar hliðargreinar vegna umsvifanna sem fylgja henni. Við erum ekki sammála um þetta en við þingmenn Austurlands erum vissulega sammála um markmiðin í menntamálum og félagsmálum. Okkur greinir ekkert á um þau.