Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Þjóðin hefur margt að segja um þetta stóra mál og því er verið að koma því á framfæri að iðnn. hefur opnað heimasíðu þar sem fólk hefur beinan aðgang að iðnn. og getur komið sjónarmiðum sínum á framfæri um þetta stóra mál sem er til umfjöllunnar í nefndinni. Ég er mjög hissa á því ef að þingmenn líta á það sem einhvern vondan hlut.