Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 17:23:02 (1945)

1999-11-18 17:23:02# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[17:23]

Jón Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Mér þykir ótrúlegt að iðnn. taki 265.000 viðtöl við þjóðina (Gripið fram í.) Hins vegar getur þjóðin --- ef ég má fá hljóð --- notað þessa heimasíðu til þess að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við nefndina. Ég kalla það að almenningur hafi aðgang að nefndinni. Stjórnarandstaðan getur kallað það hvað sem hún vill en ég tel þetta aðgang í samræmi við nútímatækni og samræmi við nútímasamskiptamáta. Fjöldinn allur af fólki hefur samband t.d. við mig sem þingmann á netinu og ég svara þeim fyrirspurnum sem koma. Það er nútímalegt.