Seðlabanki Íslands

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 18:17:43 (1970)

1999-11-18 18:17:43# 125. lþ. 29.5 fundur 161. mál: #A Seðlabanki Íslands# (lausafé lánastofnana) frv. 96/1999, viðskrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[18:17]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum, sem er 161. mál þingsins.

Með frv. þessu er lagt til að fellt verði út ákvæði um skilgreiningu á lausu fé í 8. gr. laga um Seðlabanka Íslands. Samkvæmt ákvæðinu er með lausu fé átt við peninga í sjóði, óbundnar peningainnstæður í innlendum og erlendum lánastofnunum, ríkisvíxla og aðrar sambærilegar nettóeignir með skemmri binditíma en 90 daga.

Forsaga þessa máls er sú að Seðlabankinn setti reglur um laust fé innlánsstofnana í mars sl. í því skyni að bæta lausafjárstöðu þeirra. Forsvarsmenn ýmissa lánastofnana voru ósáttir við reglurnar og töldu þær í ósamræmi við sjónarmið sem væru almennt lögð til grundvallar í lausafjárstýringu lánastofnana. Þannig mætti nefna að lánastofnanir ættu eignir sem féllu utan reglnanna en með sanngjörnum hætti mætti telja til lauss fjár. Þá tækju reglurnar ekki til lausafjárskuldbindinga lánastofnana. Einnig mætti nefna þá gagnrýni að sama lausafjárhlutfall gilti hjá öllum lánastofnunum óháð eðli viðskipta þeirra. Seðlabankanum var ljóst við setningu reglnanna að þær væru ekki nútímalegar en aðstæður á fjármagnsmarkaði höguðu því svo til að nauðsynlegt þótti að sporna gegn rýrnun lauss fjár hjá lánastofnunum. Bankinn bauð hins vegar lánastofnunum og Fjármálaeftirliti til samstarfs um undirbúning nýrra reglna sem væru meira í takt við nútímaleg og alþjóðleg sjónarmið. Ljóst er að nýjar reglur hliðstæðar þeim sem settar hafa verið í nágrannalöndunum eða eru í mótun á vegum BIS og ESB verða ekki settar hér á landi á grundvelli gildandi laga um Seðlabankann. Til þess er skilgreining laganna um laust fé of þröng. Til að veita Seðlabankanum heimild til þess að setja viðhlítandi lausafjárreglur er því lagt til að skilgreining á lausu fé í lögum um Seðlabankann verði felld úr gildi.

Seðlabanki Íslands hefur að undanförnu fylgst með þróun reglna um laust fé í nágrannalöndunum og á vegum alþjóðastofnana, svo sem Alþjóðagreiðslubankans í Basel (BIS). Til þeirra var einnig horft við undirbúning nýrra reglna sem er nánast lokið. Þær byggjast á hugmyndum sem þróaðar hafa verið í öðrum löndum. Samkvæmt þeim færi fram almennt lausafjáruppgjör þar sem litið væri á alla liði innan og utan efnahags og metið hver væru lausafjáreinkenni þeirra, en miðað við ákveðin fyrir fram skilgreind tímabelti.

Lausafjárstaða lána stofnana yrði með öðrum orðum metin með því að greina áhrif allra eigna og skuldaliða lánastofnana á lausafjárstöðuna, þ.e. innstreymi og útstreymi fjár á komandi mánuðum hverju sinni. Lagt yrði mat á líkur þess að lánastofnun, sem skortir laust fé, gæti gengið að einstökum eignum til skamms tíma og hversu líklegt væri að einstakar skuldir lánastofnunar kæmu til greiðslu á komandi mánuðum. Endanleg krafa í reglunum yrði sú að lausafjárkröfur stofnana væru meiri en sem svaraði til lausafjárskulda þeirra. Þessar reglur ættu að tryggja betur öryggi og heilbrigði í rekstri þeirra stofnana sem þeim er ætlað að ná til.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði vísað til efh.- og viðskn. að aflokinni umræðunni.