Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Mánudaginn 22. nóvember 1999, kl. 15:13:57 (1993)

1999-11-22 15:13:57# 125. lþ. 30.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, SAÞ (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 125. lþ.

[15:13]

Sigríður A. Þórðardóttir (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Tillagan um framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun sem hér á að greiða atkvæði um í hvaða nefnd skuli fara er flutt af iðnrh. og það er í fyllsta samræmi við þingvenjur að tillögunni sé vísað til iðnn. Iðnn. getur síðan óskað eftir umsögn frá umhvn. þannig að ég tel mjög eðlilegt að tillagan fari til iðnn. og í engu ósamræmi við efni hennar, síður en svo.