Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Rafræn greiðslumiðlun er nú ekki á verksviði fjmrn. en mér er þó kunnugt um að það er víða unnið að þessum málum. Meðal annars er ætlunin að taka í notkun rafræna skráningu verðbréfa á næsta ári sem án efa verður mikil framför.
Hvað varðar pappírslaus viðskipti og samskipti á vettvangi fjmrn. þá er þar að sjálfsögðu víða unnið að því að innleiða slíka tækni, m.a. í skattkerfinu eins og hafist var handa um í upphafi þessa árs þegar aðilum var gefinn kostur á að telja fram í gegnum tölvur, þ.e. á internetinu með aðstoð sérstakra skráningarnúmera sem hver og einn hafði. Það er hluti af því öryggisverki sem hv. fyrirspyrjandi nefndi.
Í öðrum atriðum er þetta mál dæmi um tollasviðið þar sem menn eru reyndar komnir mjög langt í þessu efni og stóð til að gera það að skyldu að allir teldu fram sinn inn- og útflutning í atvinnuskyni á tölvutæku formi. Nú erum við að fresta því vegna þess að það hafa komið upp hugsanlegir nýir og enn nútímalegri möguleikar í gegnum sjálft netið þannig að menn þurfi ekki að leggja í þann kostnað sem fylgir beinni tölvutengingu við tollstjóraembættið. Það eru sérstaklega lítil fyrirtæki og einstaklingar sem hafa hag af því.
Hér eru því ótrúlega miklir möguleikar fram undan og ástæða til að hafa augu og öll skilningarvit opin fyrir þeim möguleikum sem eru á þessu sviði.