Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Ég bað ekki um orðið vegna fjarvistarskráa. Hæstv. forseti tók greinilega eftir því þegar ég bað um orðið. Ég vil að það liggi fyrir.
Ég var staddur á fundi í hv. iðnn. í morgun og þar lögðum við fram tillögu, fulltrúar Samfylkingarinnar í nefndinni, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem þar er aðalfulltrúi og undirritaður. Þetta er tillaga frá þingflokki Samfylkingarinnar þess efnis að með vísan til 19. gr. þingskapa Alþingis leggja fulltrúar Samfylkingarinnar í iðnn. til að fundir iðnn. Alþingis um þáltill. iðnrh. um Fljótsdalsvirkjun verði haldnir í heyranda hljóði. Einnig er lagt til að almenningi, hópum og samtökum verði gefinn kostur á að koma á fund nefndarinnar til að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum við hina þinglegu meðferð málsins. Þetta er í fullkomnu samræmi við það sem kemur fram í grg. með þáltill. hæstv. iðnrh. Þar segir eitthvað á þá leið að gefa eigi almenningi kost á að koma að þinglegri meðferð málsins.
Það kom fram í umræðum um þessa tillögu í nefndinni að formaður nefndarinnar og aðrir þar treystu sér ekki til þess að samþykkja hana. Það var ekki vegna þess að þeir væru á móti henni, þar kom fram að menn væru sammála því að gott væri að fara þessa leið og það hefur einnig verið haft eftir formanni nefndarinnar í fjölmiðlum. Hins vegar var talið að nefndin hefði ekki fjármuni til að taka þannig á málinu. Þess vegna teljum við að halda þurfi fund í forsn. sem allra fyrst nú þegar vinna er hafin við málið á vegum hv. nefndar. Nauðsynlegt er að fá niðurstöðu í þetta svo hægt sé að fara að vilja ráðherra og þess anda sem ég tel að svífi hér yfir vötnunum, að almenningi verði gefinn kostur á að koma að þessu máli sem svo sérkennilega meðferð fær á vegum hv. Alþingis.