Jóhanna Sigurðardóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því, áður en atkvæðagreiðsla fer fram um hvert vísa á frv. um Seðlabanka Íslands, að í 23. gr. þingskapa stendur:
,,Vísa skal frumvörpum, þingsályktunartillögum og skýrslum til nefnda eftir efni þeirra og hafa um það hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu.``
Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands þá heyrir Seðlabankinn undir viðskrh. og gerir enn þar til þetta frv. er orðið að lögum. Við erum ekki að fjalla um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, sem fjallar um verkaskiptingu milli ráðuneyta, heldur erum við að fjalla um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands. Þess vegna er eðlilegt að þetta mál, eins og öll önnur sem fjalla um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, fari til meðferðar í hv. efh.- og viðskn.