Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég deili áhyggjum mínum með síðasta ræðumanni um þetta mál. Það má líka nefna fleiri staði sem eru viðkvæmir. En þar sem við erum með Reykjanesbrautina á þessu svæði, þá geta auðvitað orðið slys þar eins og víða annars staðar. Ég hef hins vegar ekki svör hér við þeirri spurningu hver sé ábyrgur. Ég býst við því að það skipti máli hvernig slys hefði borið að, þ.e. hvort þar væri um að kenna vítaverðu gáleysi bílstjóra eða einhverjum öðrum ástæðum þannig að ég hef ekki svör við því hér. En það er alveg rétt að það mundi geta orðið talsvert umhverfisslys ef bíll með stóran olíufarm mundi velta á hliðina þannig að olían læki út í hraunið á viðkvæmum stað. Ég deili því áhyggjum hv. fyrirspyrjanda vegna þessa máls.