Byggðastofnun

Mánudaginn 06. desember 1999, kl. 16:48:39 (2362)

1999-12-06 16:48:39# 125. lþ. 36.8 fundur 224. mál: #A Byggðastofnun# (heildarlög) frv. 106/1999, GuðjG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 125. lþ.

[16:48]

Guðjón Guðmundsson (andsvar):

Herra forseti. Já, það má vel vera að þetta hafi ekki verið nógu nákvæmlega orðað hjá mér. Það sem ég átti við var að þessi skýrsla er að uppistöðu samin af þróunarsviðinu, starfsmönnum þróunarsviðs Byggðastofnunar. En það er hárrétt hjá hv. þm. að stjórn Byggðastofnunar lagði blessun sína yfir þetta plagg og sendir það frá sér sem slíkt þannig að ég hefði kannski átt að orða það svo. En það sem ég var að reyna að gera var að þakka starfsmönnum Byggðastofnunar fyrir þetta ágæta verk sem þeir unnu. Ég tel að þeir hafi gert það mjög vel. En það er rétt að stjórnin lagði síðan blessun sína yfir skýrsluna.