Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Meginatriði innleggs míns í málið er að við getum ekki farið með þetta frv. sem mál eins ráðuneytis. Vandi landsbyggðarinnar er ekki spurning um það. Ég held að menn séu að vaða reyk og hafi tekið rangan kúrs hvað þetta varðar. Vandamál landsbyggðarinnar er ekki bara spurning um að byggja verksmiðjur og framleiðslutæki. Vandamálin tilheyra öllum ráðuneytum og þarfnast sýnar yfir allt sviðið.
Byggðarvandinn tengist rekstri sjúkrastofnana og vegamálum. Hann snertir öll ráðuneytin. Það er svo mikil hætta á því að bindingin við eitt ráðuneyti leiði af sér þá grunnhugsun að spurningin sé fyrst og fremst um að byggja upp grunnatvinnu en snúist t.d. ekki um þjónustusviðið. Þar liggur stór hluti af vanda landsbyggðarinnar eins og fjárlögin og fjáraukalögin sýna. Hér er tekið á stórkostlegum málum, framúrkeyrslu í heilbrigðiskerfi og víðar.
Það verður að ganga í málin á þessum nótum. Það er megininnlegg mitt. Ég vonast til þess, hæstv. forseti, að nefndin sem fjallar um þetta fari róttækt í þessi mál með nýja hugsun að leiðarljósi.