Byggðastofnun

Mánudaginn 06. desember 1999, kl. 18:43:46 (2394)

1999-12-06 18:43:46# 125. lþ. 36.8 fundur 224. mál: #A Byggðastofnun# (heildarlög) frv. 106/1999, HjÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 125. lþ.

[18:43]

Hjálmar Árnason (andsvar):

Herra forseti. Í þessu fólst ekki bein spurning og ég held að óþarfi sé að bregðast við lífsreynslusögum hv. þm. Jóhanns Ársælssonar. Ég vil líta á þetta sem almenna lýsingu hans og lífsreynslu. Það er fróðlegt að heyra þetta en ég hef allt aðra lífsreynslu en hv. þm. til allrar hamingju.