Fjáraukalög 1999

Þriðjudaginn 07. desember 1999, kl. 17:34:48 (2456)

1999-12-07 17:34:48# 125. lþ. 37.3 fundur 117. mál: #A fjáraukalög 1999# frv. 129/1999, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[17:34]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég fagna því að hv. þm. vill standa vörð um heilbrigðiskerfið. Það gerum við saman. Ég vona að hann geri það í anda hinnar vestfirsku samhjálpar en ekki amerískra aðferða eða thatcherisma. Ég vona að í þeim aðgerðum sem farið verður út í þá stöndum við saman um það, herra forseti.