Fjáraukalög 1999

Þriðjudaginn 07. desember 1999, kl. 17:35:19 (2457)

1999-12-07 17:35:19# 125. lþ. 37.3 fundur 117. mál: #A fjáraukalög 1999# frv. 129/1999, EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[17:35]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Þetta fer að nálgast það að vera mjög göfug umræða. Samhjálpin er bæði úr okkar kristna grunni sem og hinum germanska grunni, langt aftur í aldir. Ég er sannfærður um að við stöndum öll saman að henni, í öllum flokkum Íslands.