Jón Bjarnason:
Herra forseti. Við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði viljum benda á að enn eru ekki öll þau atriði komin fram sem geta komið inn í fjáraukalögin endanlega. Við viljum benda á að ekki hefur verið fjallað um alla kafla þess, svo sem lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir og fleiri atriði hafa ekki endanlega verið útkljáð. Við viljum því benda á það við þessa afgreiðslu.
Við viljum í sjálfu sér ekki tefja framgang málsins og leggjum til að þessu verði vísað til 3. umr.