Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Föstudaginn 10. desember 1999, kl. 11:42:57 (2677)

1999-12-10 11:42:57# 125. lþ. 42.1 fundur 235. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# (sala á 15% hlut) frv. 93/1999, viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 125. lþ.

[11:42]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég staðfesti bara það sem áður hefur komið fram, ég held að þetta sé mjög skynsamleg tillaga sem hér er lögð fyrir. Eins og komið hefur fram í umræðunni líka, þá er unnið að því að gera slíka úttekt. Hún mun síðan vafalaust verða til umfjöllunar þegar fram líða stundir. Það er ekki oft sem ég tek undir tillögur frá hv. þingflokki Frjálslynda flokksins en ég held að það sé nú af því hve einstaklega vel hann er saman settur þessa stundina að mér finnst rétt að taka undir tillöguna.