Frsm. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson):
Herra forseti. Minni hluti fjárln. telur að við núverandi aðstæður sé höfuðnauðsyn að grípa til aðgerða sem miða að því að draga úr þenslunni, koma í veg fyrir að í góðærinu gliðni enn milli þeirra sem eru illa settir í þjóðfélaginu og hinna, auk þess að taka á hinni alvarlegu byggðaröskun. Þessum markmiðum er ekki þjónað með því frv. til fjárlaga sem liggur fyrir Alþingi. Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar um að draga úr jaðarsköttum ber frv. með sér að engin skref eru stigin til þess og aldrei hafa jafnmiklar upphæðir verið teknar af ungu fjölskyldufólki í jaðarskatta sem nú. Sömuleiðis er athyglisvert að þrátt fyrir þann áfellisdóm sem velferðarstefna ríkisstjórnarinnar hlýtur í nýlegu riti Stefáns Ólafssonar prófessors, Íslensku leiðinni, ber frv. engin merki þess að ríkisstjórnin áformi að bæta kjör öryrkja og aldraðra. Í því samhengi er óhjákvæmilegt að minna á gullið tækifæri sem ríkisstjórnin missti til þess á síðasta ári þegar gripið var til almennra skattalækkana í stað þess að nota hluta þess svigrúms til að bæta kjör þeirra hópa.
Innlendar jafnt sem erlendar stofnanir hafa lagt afar þunga áherslu á að ríkisstjórnin beiti hagstjórnartækjum sínum til að draga úr þenslunni. Í núverandi stöðu dylst fæstum að fjárlagafrv. gæti leikið lykilhlutverk í því að koma í veg fyrir skjótar lyktir góðærissveiflunnar með því að hafa hemil á ríkisútgjöldum og skila miklum tekjuafgangi. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar er því mikil. Stefnumörkun hennar í fjárlagafrv. sker í reynd úr um hvort hægt verður að treina góðærið. Í orði hefur ríkisstjórnin tekið undir þessar aðvaranir. Í reynd er niðurstaðan hins vegar þannig að frumvörp hennar til fjárlaga og fjáraukalaga, sem nú liggja fyrir þinginu, stórauka útgjöld og eru beinlínis þensluhvetjandi. Stjórnarandstaðan tekur undir með hagfræðistofnunum sem hafa bent á að í því góðæri sem nú ríkir hefði verið þörf á mun meiri tekjuafgangi en fjárlagafrv. gerir ráð fyrir. En það er engu líkara en allar stíflur hafi brostið og síðustu missiri hafa útgjaldatillögur vaxið stjórnlítið.
Alvara málsins er mikil. Hún speglast í eftirfarandi: Það stefnir í að á fyrsta heila ári þessa kjörtímabils verði ríkisútgjöld 20 milljörðum meiri en síðasta heila árið á nýliðnu kjörtímabili. Meðfylgjandi tafla í nál. minni hluta sýnir svart á hvítu þann gríðarlega vöxt útgjalda sem hefur orðið síðustu árin. Þar kemur fram að á einungis fimm ára tímabili frá árinu 1994 til loka ársins 1998 hafa útgjöld ríkisins aukist um 54 milljarða á föstu verðlagi. Þessi þróun hefur öll orðið undir forustu Sjálfstfl. Hann hefur farið með bæði forsrn. og fjmrn. á meðan þessi útgjaldasprenging hefur orðið. Í þessari þróun felst alvarleg hætta fyrir samfélagið. Hún er sú að sloti góðærinu situr samfélagið uppi með aukningu í útgjöldum ríkisins upp á tugi milljarða án þess að hafa tekjur til að standa undir þeim. Ekki þarf að mála sterkum litum hve gríðarlegir erfiðleikar mundu fylgja þeim harkalegu aðhaldsaðgerðum sem þá yrði óhjákvæmilegt að grípa til.
Ríkisstjórninni hafa síðustu missiri orðið á margvísleg mistök við hagstjórnina eins og rakið er ítarlega í áliti minni hluta fjárln. við frv. til fjáraukalaga sem er einnig til afgreiðslu í þinginu. Hin helstu felast í rangri skattastefnu þar sem ýtt var undir almenna þenslu með því að lækka tekjuskatta á þorra almennings í miðju góðærinu í stað þess að nota hluta svigrúmsins handa verst stöddu hópunum eins og fyrr er sagt. Sömuleiðis í mistökum sem áttu sér stað þegar ríkisstjórnin hófst handa um að einkavæða bankana og ýtti stórlega undir þenslu. Yfirlýsingar forustu ríkisstjórnarinnar, sem gáfu til kynna að sala ríkisfyrirtækja mundi færa þjóðinni tugi milljarða og sköpuðu þannig óhóflegar væntingar sem örvuðu neyslu og þar með þenslu. Loks má svo nefna gríðarlega þenslu í húsnæðiskerfinu sem má beinlínis rekja til lausataka ríkisstjórnarinnar. Þar er eitt birtingarform þess þjóðarvanda sem búsetuþróun síðustu ára veldur í efnahagslegu tilliti. Sömuleiðis er líklegt að viðskipti með aflakvóta í krafti gallaðs fiskveiðikerfis hafi bæði aukið eftirspurn eftir lánsfé og framboð lánsfjár.
Frumvörp ríkisstjórnarinnar til fjárlaga og fjáraukalaga eru framhald á þessari óheillaþróun. Í þeim birtist agaleysi ríkisstjórnarinnar. Þau staðfesta einfaldlega að undir forustu Sjálfstfl. eru útgjöld ríkisins í hröðum vexti. Í þessu efni gera brtt. meiri hlutans illt verra með því að minnka áætlaðan tekjuafgang ríkissjóðs enn frekar frá upphaflegu frv. Með frv. sínu hefur því ríkisstjórnin misst af tækifæri til að draga úr þenslunni og hefur því aukið líkurnar á að landsmenn missi góðærið úr höndum sér.
Eins og fyrr segir hafa stríðar aðvörunarraddir heyrst á undanförnum missirum um að þenslan í þjóðfélaginu sé komin á hættustig og verðbólgan muni aukast á næsta ári. Verðbólgan er sérstakt áhyggjuefni. Ofþenslan sem ríkisstjórnin neitaði að viðurkenna fyrir kosningar og bregðast við í tíma hefur gert henni kleift að spretta úr spori. Í október var verðbólgan komin í 5,3% og í nóvember var hún litlu minni eða um 5%. Þetta er tvöfalt eða þrefalt meiri verðbólga en í nágrannalöndum okkar. Seðlabankinn hefur enn fremur spáð um 4% verðbólgu á næsta ári. Það byggist þó á því að kjarasamningar verði á hófsömum nótum og það dragi úr hagvexti og aukningu innlendrar eftirspurnar. Margir hafa þó lýst efasemdum um að það verði í þeim mæli sem Þjóðhagsstofnun hefur spáð, m.a. hæstv. fjmrh. er hann kynnti frv. til fjárlaga fyrr í haust.
Hvað kjarasamninga á almennum vinnumarkaði varðar mun verkalýðshreyfingin óhjákvæmilega horfa til fordæmis ríkisstjórnarinnar. En samkvæmt launavísitölu hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 18,3% frá fyrsta ársfjórðungi 1997 til þriðja ársfjórðungs í ár meðan hækkunin var 28,1% hjá opinberum starfsmönnum og bankamönnum. Miklar hækkanir hafa einnig orðið hjá æðstu embættismönnum í ríkiskerfinu. Tæpast verður þessi þróun til að haga kjarasamningum á almennum vinnumarkaði með þeim hætti sem vonast er eftir af hálfu ríkisstjórnar og Þjóðhagsstofnunar.
Aukinn viðskiptahalli ræður miklu um þessa þróun. Gert er ráð fyrir að hann verði enn mikill á næsta ári. Aukin skuldasöfnun heimilanna er einnig mikið áhyggjuefni, ekki síst þar sem fyrir liggur að hún á sér ekki rætur í fjárfestingu heldur neyslu. Á móti auknum skuldum heimilanna í landinu er því ekki samsvarandi eignamyndun eins og er þráfaldlega haldið fram af talsmönnum ríkisstjórnarinnar. Aukning verðbólgu gæti því reynst fjölmörgum heimilum ákaflega þungur baggi og mun að sjálfsögðu veikja efnahagsstöðu þjóðarinnar bæði til skemmri og lengri tíma litið.
Þjóðhagslegar forsendur fjárlaga hafa oftar en ekki brugðist á undanförnum árum eins og minni hluti fjárln. hefur ítrekað bent á. Í núverandi spá er gert ráð fyrir að töluvert dragi úr vexti landsframleiðslu á næsta ári og að hagvöxtur verði um 2,7%. Þá er reiknað með að hægi á vexti einkaneyslu með hægari vexti kaupmáttar og að hún verði 2,5% í stað 6% eins og áætlað er að hún verði á yfirstandandi ári. Hins vegar er spáð aukningu í fjárfestingu í stað samdráttar á yfirstandandi ári. Þá er talið að innan skamms muni koma fram í hagtölum að innflutningur varanlegra neysluvara hafi náð mettun og í kjölfarið verði minna flutt inn af rekstrarvörum og fjárfestingarvörum til annarra en stóriðju. Auk óvissu um niðurstöður kjarasamninganna sem eru fram undan og áhrif þeirra á efnahagsþróun, ekki síst verðlagsþróun, er vaxandi óvissa um þessar mundir varðandi framleiðslu og verðlag mikilvægra sjávarafurða.
Nú er spáð að landsframleiðsla aukist um 5,8% á þessu ári en verði einungis 2,7% á því næsta. Gangi þessi spá eftir er hagvöxtur þessa árs sá mesti frá árinu 1987. Mikil aukning landsframleiðslu á þessu ári stafar fyrst og fremst af áframhaldandi örum vexti einkaneyslu og töluvert meiri vexti útflutnings í fyrra á sama tíma og dregið hefur verið úr vexti innflutnings. Þessi ofþensla eftirspurnar átti þátt í að kynda undir verðbólgu þessa árs og því er enn áréttuð nauðsyn þess að draga úr vexri innlendrar eftirspurnar.
Í ársfjórðungsriti Seðlabanka Íslands, Peningamálum, bendir bankinn á að margt hafi komið fram af því sem bankinn varaði við í haustskýrslu sinni í nóvember 1998 og minni hluti fjárln. vitnaði til í nál. sínu vegna fjárlaga ársins 1999. Telur Seðlabankinn að meginverkefni hagstjórnar á næstunni sé að stuðla að því að verðbólgan minnki á ný. Bankinn telur einnig áhyggjuefni að í þjóðhagsáætlun sé því spáð að viðskiptahallinn muni að óbreyttu nema 3% af landsframleiðslu á næstu árum. Telur bankinn þetta til vitnis um undirliggjandi halla sem muni ekki hverfa eftir að stóriðjuframkvæmdum lýkur. Þá bendir Seðlabankinn á að það sé áhyggjuefni að viðleitni til að auka þjóðhagslegan sparnað hafi ekki enn skilað árangri. Síðan segir Seðlabankinn orðrétt, með leyfi forseta:
,,Full ástæða er til að taka þennan vanda alvarlega þar sem viðskiptahallinn getur til lengdar grafið undan stöðugleika gengis, auk þess sem vaxandi skuldir þjóðarbúsins sem honum fylgja gera það viðkvæmara fyrir áföllum.``
Þar sem eftirspurnarþenslan virðist meiri en ráð var fyrir gert þarf afgangur á fjárlögum að vera meiri en reiknað er með í frv.
Herra forseti. Niðurstaðan er hins vegar mjög ljós. Í öllum grundvallaratriðum hefur ríkisstjórnin brugðist varðandi hagstjórn hér á landi á undanförnum árum og stjórnvöld verða að taka sig verulega á í þeim efnum á næsta ári ef ekki á illa að fara.
Því hefur oft verið haldið fram að erfiðara sé að stjórna í góðæri en í hallæri. Nauðsynlegt aðhald vill oft gleymast þegar velgengni blasir við. Með fyrirliggjandi frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999 og tillögum meiri hluta fjárln. vegna frv. til fjárlaga fyrir árið 2000 eru útgjöld aukin um 12,5 milljarða kr. Nauðsynlegt hefur verið að leiðrétta rekstrargrunn ýmissa stofnana, einkum í heilbrigðiskerfinu, og í mörgum tilfellum var full þörf á því að viðurkenna staðreyndir í þeim efnum. Fram hjá því verður hins vegar ekki litið að þessi viðbótarútgjöld sýna að fjármálastjórn margra stofnana, svo og eftirlit ráðuneyta með þeim, er í ólestri. Hæstv. fjmrh. taldi ástæðu til að fara nokkrum orðum um bætta framkvæmd fjárlaga í frv. fyrir árið 2000 en þar segir hæstv. fjmrh., með leyfi forseta:
,,Áhersla verður lögð á að bæta framkvæmd fjárlaga svo rekstur stofnana verði innan fjárheimilda og þörf fyrir viðbótarfjárheimildir í fjáraukalögum fari minnkandi. Samhliða auknum áhrifum stjórnenda á rekstri stofnana er nauðsynlegt að þeir beri ábyrgð til samræmis, líkt og gerist í öðrum atvinnurekstri.``
Enn sem komið er hefur þessi bætta framkvæmd ekki verið útfærð nánar af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti forstöðumenn stofnana verði látnir bera ábyrgð og hvaða viðmiðanir hæstv. fjmrh. hefur í huga. Sjálfsagt er og nauðsynlegt að skoða tillögur um slíkt við 3. umr. fjárlaga. En eftir höfðinu dansa limirnir. Því er ekki síður mikilvægt að ríkisstjórnin í heild svo og einstakir ráðherrar sýni festu og ábyrgð í fjármálastjórn sinni. Engum blandast hugur um að það er hæstv. fjmrh. sem ber hina formlegu ábyrgð á veikri stjórn ríkisfjármála og vaxandi agaleysi í þeim. Illu heilli hefur hæstv. ráðherra ekki gengið á undan með góðu fordæmi í stjórn eigin ráðuneytis eins og þegar hefur verið reifað af stjórnarandstöðunni í umfjöllun Alþingis um fjáraukalög. Í tengslum við útfærslu á aukinni ábyrgð forstöðumanna stofnana liggur því beint við að ábyrgð hæstv. fjmrh. og annarra hæstv. ráðherra verði einnig skilgreind betur.
Herra forseti. Það er athyglisvert í þessu samhengi að horfa til einstakra ráðuneyta þegar bornar eru saman áætlaðar niðurstöður ársins 1999 og frv. til fjárlaga auk þeirra brtt. sem meiri hluti fjárln. leggur til. Það kemur í ljós þegar búið er að taka út úr samanburðartölum lífeyrisskuldbindingar og vaxtagjöld ríkissjóðs og einnig þau verkefni sem færð eru milli ráðuneyta að það er ráðuneyti hæstv. forsrh. sem eykur útgjöld sín hlutfallslega mest eða um rúmlega 12% frá áætluðum niðurstöðutölum ársins 1999 til þeirra tillagna sem nú liggja fyrir varðandi árið 2000. Í öðru sæti er ráðuneyti hæstv. utanrrh. með rúm 10% í sama samanburði. Hér fara oddvitar stjórnarflokkanna fram með fordæmi sem aðrir hæstv. ráðherrar taka væntanlega eftir og fylgja í kjölfarið. Í þriðja sæti í þessum samanburði er æðsta stjórn ríkisins, þar með talið hv. Alþingi. Síðan koma hæstv. ráðherra fjármála og hæstv. iðnrh. með milli 7 og 8% aukningu í þessum samanburði. Herra forseti. Það er ljóst að hér er ekki það fordæmi sýnt sem þurft hefði.
Meiri hluti fjárln. gerir brtt. sem nema um 3,6 milljörðum kr. Að öllu óbreyttu verður tekjuafgangur ríkissjóðs því 11,4 milljarðar kr. Seðlabankinn telur hins vegar að tekjuafgangur frv. að fjárhæð 15 milljarðar feli ekki í sér nægjanlegt viðbótaraðhald. Þá stefnir í að auka þurfi skattheimtu eða vona að ný þjóðhagsspá færi ríkissjóði auknar tekjur.
Stærsti hluti viðbótarinnar í tillögum meiri hluta fjárln. er til heilbrigðiskerfisins, eða 2,3 milljarðar kr. Því hefur verið veitt til viðbótar í þennan málaflokk alls 7,3 milljörðum kr. ef frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999 er talið með. Miðað við árið 1998 hafa fjárveitingar í þennan málaflokk aukist um rúmlega 11 milljarða kr. eða um tæplega 18%.
Ljóst er af umræðunni að ríkisstjórnin og meiri hluti hennar á Alþingi hyggst gera forstöðumenn heilbrigðisstofnana að blórabögglum fyrir eyðslu langt umfram fjárlög. Það er sjálfsagt að forstöðumenn axli ábyrgð sína en undan henni geta ráðherrar ríkisstjórnarinnar heldur ekki skotið sér. Úttekt Ríkisendurskoðunar á fjárhagsvanda heilbrigðisstofnana ber með sér að hvorki hæstv. heilbrrh. né hæstv. fjmrh. hafa staðið undir ábyrgð í þeim efnum. Forstöðumenn stofnana leituðu eftir fyrirmælum frá heilbrrn. snemma á þessu ári þegar ljóst var að stefndi í algert óefni. Hæstv. heilbrrh. veitti þeim hvorki stuðning né fyrirmæli um hvernig skyldi bregðast við. Sama gilti þegar forstöðumenn leituðu eftir stuðningi ráðuneytisins við útfærslu kjarasamninga. Eina svar ráðuneytisins var þögnin. Í því sambandi er vert að rifja upp að nýlegar lagabreytingar gera að verkum að forstöðumenn stofnana eru nú undir beinu boðvaldi hæstv. ráðherra en ekki stjórna stofnananna. Fyrir vikið er ábyrgð hæstv. heilbrrh. mikil.
Hæstv. fjmrh. getur heldur ekki skotið sér undan ábyrgð á þessum vanda. Hæstv. ráðherra ber að hafa yfirsýn á þróun fjármála ríkisins. Á fundi hæstv. heilbrrh. með fjárln. kom fram hjá ráðherra að ítrekað hefði ráðuneytið leitað eftir aðstoð fjmrn. án árangurs. Þó ábyrgð hæstv. heilbrrh. á því ófremdarástandi sem undir stjórn hæstv. ráðherra hefur skapast í fjármálum heilbrigðisstofnana sé að sönnu mikil getur hæstv. fjmrh. ekki vikist undan sínum hluta hennar. Hæstv. fjmrh. líkt og hæstv. heilbrrh. svaf á verðinum. Þetta er nauðsynlegt að undirstrika í ljósi krafna sem fram hafa komið í liði stjórnarþingmanna um að víkja forstöðumönnum úr starfi. Eigi forstöðumenn að sæta ábyrgð með þeim hætti, hvernig er þá rétt að láta umrædda hæstv. ráðherra axla sinn hluta ábyrgðarinnar?
Herra forseti. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að skoða örlítið nánar þær tillögur sem meiri hluti fjárln. leggur til varðandi breytingar í fjárveitingum til heilbr.- og trmrn. Þegar gerður er samanburður á áætlaðri niðurstöðu ársins 1999, þ.e. þegar lögð eru saman fjárlög 1999 og þær tillögur sem fram koma í fjáraukalögum 1999 og þær tölur bornar saman við þær tölur sem nú liggja fyrir, þ.e. samanlagðar tölur í frv. til fjárlaga 2000 og þær brtt. sem meiri hluti fjárln. leggur hér til, er ljóst að heilbrigðisstofnanir hækka ekki nema um 2,6%. Það hlýtur því að kalla á spurninguna um hvort í raun sé búið að taka á þeim vanda sem fyrir er innan heilbrigðisstofnananna. Það liggur ljóst fyrir að 2,6% eru um einu prósenti undir þeim verðlagsforsendum sem gerðar eru í fjárlagafrv. Ef það eina prósent er reiknað inn þá virðist enn skorta um 350 millj. kr. En það er ekki bara þetta eina prósent sem á vantar. Einnig liggur fyrir að á næsta ári eru 30% starfsmanna heilbrigðisstofnana með lausa kjarasamninga og þær stéttir hljóta að taka viðmið af þeim launahækkunum sem aðrar stéttir innan heilbrigðisstofnana hafa fengið á undanförnum missirum. Eins er ljóst, herra forseti, að enn er ekki allt fram komið sem innifalið er í hinu svokallaða framgangskerfi hjúkrunarfræðinga. Því er eðlilegt, herra forseti, að spyrja: Hvað vantar í raun marga milljarða inn í heilbrigðiskerfið þannig að búið sé að bregðast við þeim vanda sem þar er?
Herra forseti. Í allri þeirri umræðu um heilbrigðismál, sem átt hefur sér stað í tengslum við fjáraukalög og nú um fjárlög, hafa aðrir stórir málaflokkar siglt lygnan sjó í gegnum kerfið með hækkanir sínar. Miðað við fjárlög ársins 1999 aukast útgjöld til menntamála um tæpa 2 milljarða kr. á árinu 2000. Við lestur frv. til fjáraukalaga verður ekki annað séð en að menntamálin eigi líka við uppsafnaðan vanda að stríða. Spurning er hvort þeim sé komið á réttan kjöl með þessari viðbótarfjárveitingu. Í frv. til fjáraukalaga kemur fram að áformað sé að fara yfir rekstur og fjármál verst stöddu framhaldsskólanna til að endurmeta forsendur fyrir fjárveitingum. Þetta bendir til þess að ekki sé búið að leysa allan vandann og telur minni hlutinn nauðsynlegt að þessi málaflokkur fái sams konar vandamálagreiningu og heilbrigðismálin.
Herra forseti. Það er athyglisvert að skoða í þessu samhengi örfáar tölur og eins hluta þeirrar skýrslu sem fjárln. fékk frá menntmrn. og ber nafnið Afkoma framhaldsskólanna 1998, með undirtitilinn Fyrsta ár í reiknilíkani. Þessi bæklingur kom út hjá menntmrn. í okt. sl. Hann er að mestu ritaður af deildarstjóra framhaldsskóladeildar, Aðalsteini Eiríkssyni. Þar segir m.a., með leyfi forseta, í kaflanum Meginniðurstöður:
,,Greiðslustaða skólanna gagnvart ríkissjóði hefur versnað undanfarin þrjú ár þrátt fyrir ótvíræðan vilja allra skólastjórnenda til þess að láta enda ná saman.``
Einnig segir Aðalsteinn í þessum sama kafla, með leyfi forseta:
,,Margt í undirbúningi fjárlaga hefur einnig stórbatnað. Þeir möguleikar sem í öllu þessu felast munu skila sér með tímanum en ekki eins hratt og vonast hefur verið til.``
Og áfram heldur Aðalsteinn, með leyfi forseta:
,,Skýringa á versnandi afkomu er m.a. að leita í hröðum breytingum á rekstrarumhverfi, t.d. kjarasamningum, tölvuvæðingu og breytingum á faglegu innra starfi skólanna og stórauknum kröfum til skólanna um þjónustu við nemendur, kennara og í málum sem áður voru á hendi ráðuneyta.``
Herra forseti. Aðalsteinn heldur síðan áfram örlítið seinna í þessum kafla:
,,Augljósasti veikleikinn í stöðunni er samhengið á milli fyrirliggjandi bókhaldsgagna og tímanlegrar ákvarðanatöku. Bæði innan skólanna og í fjárveitingaferlinu eða fjárlagaundirbúningnum.``
Herra forseti. Þetta eru býsna alvarleg orð og nauðsynlegt, eins og fram kom áður í máli mínu, að mati minni hluta fjárln. að vandi framhaldsskólanna verði skoðaður sérstaklega og í raun vandi ýmissa fleiri skóla. Og enn til þess að ítreka vil ég nefna nokkrar tölur til viðbótar þar sem m.a. kemur fram og eykur enn á grunsemdir um að þarna sé ekki brugðist við öllum þeim vanda sem er í kerfinu.
En þegar litið er á framhaldsskólana, þ.e. hina almennu framhaldsskóla, sérskólarnir eru ekki taldir með, þá hefur skuld þeirra eða frammúrkeyrsla þeirra í árslok 1998 verið rétt tæpar 350 milljónir. Síðan er gert ráð fyrir því að á fjáraukalögum fyrir yfirstandandi ár komi til viðbótar við fjárlögin tæplega 170 milljónir. Hins vegar er ljóst, miðað við þær upplýsingar sem ég hef, að um síðustu mánaðamót voru framhaldsskólarnir í mínus upp á tæpar 190 millj. kr. Það segir, ef þessar tölur eru réttar, að enn hafi í raun ekki verið brugðist við þeim vanda sem var í lok ársins 1998 og þess vegna er afar mikilvægt áður en við ljúkum umfjöllun um fjárlög fyrir árið 2000 að þessi vandi verði skoðaður sérstaklega. Ég ítreka enn það sem áður kom fram að minni hluti fjárln. telur nauðsynlegt að menntamálin fái svipaða skoðun og heilbrigðismálin hafa fengið.
Herra forseti. Eins og staðan er í dag stefnir í að útgjöld ríkissjóðs á næsta ári verði 193,6 milljarðar kr. sem er 3,4 milljörðum kr. hærri fjárhæð en áætluð niðurstaða ársins 1999 og nemur aukningin 1,8%. Að lífeyrisskuldbindingum og vaxtagjöldum slepptum aukast útgjöld um 5,9 milljarða kr. eða um 3,5%. Ef miðað er við niðurstöðu ársins 1998 aukast útgjöld ríkisins á árinu 2000 um 20,8 milljarða kr. eða um 13,6%. Þetta þýðir að útgjöld ríkissjóðs hafa vaxið umtalsvert að raungildi og því ljóst að ríkissjóði hefur ekki tekist að halda útgjöldum í skefjum og hafa þau því hækkað að raungildi. Því bendir fátt til þess að í frv. felist sú mikilvæga aðhaldsaðgerð sem allar hagfræðistofnanir innan lands sem utan er fjallað hafa um málið telja nauðsynlega.
Herra forseti. Einn helsti vandi íslensks samfélags er sú mikla byggðaröskun sem orðið hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar. Stjórnvöldum hefur algerlega mistekist að sporna gegn henni. Vanmáttur ríkisstjórnarinnar birtist m.a. í mikilli fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem magnað hefur þensluna í húsnæðiskerfinu. Þessi þensla hefur haft áhrif á verðbólgu og hækkað skuldir heimilanna. Það hafa eignir heimilanna ekki gert að sama skapi því að aðeins húseigendur á höfuðborgarsvæðinu hafa notið þeirra hækkana sem þenslan hefur valdið. Íbúar á landsbyggðinni hafa jafnvel mátt búa við lækkandi fasteignaverð.
Herra forseti. Á nokkrum stöðum í fjárlagafrv. og í tillögum meiri hluta fjárln. eru gerðar gagnlegar tillögur í byggðamálum og eðlilegt að fagna þeim svo langt sem þær ná. Hins vegar er nauðsynlegt að rifja upp örfáar greinar í samþykktri þál. um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999--2001. Þar mætti minnast á samgöngur. Ég vil einnig leggja sérstaka áherslu það sem segir í 6. tölul. hinnar samþykktu þáltill. en þar segir, með leyfi forseta:
,,Lögð verði áhersla á að opinberum störfum fjölgi eigi minna hlutfallslega á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Því markmiði verði meðal annars náð með því að leitast við að staðsetja nýja starfsemi hins opinbera utan höfuðborgarsvæðisins. Skilgreind verði eftir föngum þau verkefni einstakra ráðuneyta, stofnana og opinberra fyrirtækja sem unnt er að sinna á landsbyggðinni. Hvert ráðuneyti fyrir sig leggi fram tillögur þar að lútandi sem meðal annars geri ráð fyrir að möguleikar upplýsingatækninnar verði nýttir til hins ýtrasta.``
Herra forseti. Því miður er engar slíkar tillögur að finna í frv. til fjárlaga né í brtt. meiri hluta fjárln. Það verður að segjast að einkageirinn virðist hafa verið fljótari til að uppgötva hvernig hægt er að færa slík störf af höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar. Enn er beðið eftir tillögum ráðuneytanna og vonandi munu á milli 2. og 3. umr. fæðast einhverjar hugmyndir þannig að hægt sé að stíga fyrstu skrefin í þessa átt.
Herra forseti. Eitt atriði enn úr hinni samþykktu þáltill., m.a. segir í 16. lið., með leyfi forseta:
,,Byggðastofnun meti reglulega áhrif lagasetningar, fjárlagagerðar og einstakra stjórnvaldsaðgerða á byggðaþróunina í landinu.``
Það er óhjákvæmilegt, herra forseti, að spyrja hvenær búast megi við því að Byggðastofnun meti fjárlagagerðina. Það verður of seint þegar fjárlagagerðinni er lokið. Því væntum við þess að mat Byggðastofnunar liggi fyrir áður en gengið verður til 3. umr. fjárlaga.
Einnig, herra forseti, er nauðsynlegt að skoða tillögur hinnar svokölluðu byggðanefndar forsrh. sem skilaði af sér í kjölfar hinnar samþykktu þáltill. Þar eru tillögur um ýmislegt sem talið er geta snúið hinni óheillavænlegu byggðaþróun við. Í I. kafla í tillögum nefndarinnar er fjallað um jöfnun lífskjara. Þar hefur meiri hluti fjárln. brugðist við bæði með auknu fjármagni til að jafna húshitunarkostnað og eins til að jafna námskostnað og ber að þakka það sem vel er gert. Hins vegar er átaks í vegamálum enn saknað. Ég minni á það sem ég las áðan úr hinni samþykktu þáltill. vegna þess að í tillögum nefndar forsrh. er einnig lögð mikil áhersla á fjölgun starfa á landsbyggðinni. Enn er lýst eftir hugmyndum og tillögum í þá átt.
Herra forseti. Á tímum mesta góðæris Íslandssögunnar er það einnig áfellisdómur yfir stjórnarstefnunni að staða þeirra sem styðjast við bætur almannatryggingakerfisins hefur síst skánað. Þrátt fyrir yfirlýsingar forsrh. um hið gagnstæða er staðreynd að staða lífeyrisþega er snöggtum verri en annars staðar á Norðurlöndum. Þetta er staðfest í niðurstöðum faglegrar úttektar á íslenska velferðarkerfinu sem Stefán Ólafsson prófessor annaðist á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Þar kemur fram að útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála eru langtum lægri á Íslandi en hjá öðrum norrænum þjóðum. Séu þau reiknuð sem hlutfall af vergri landsframleiðslu kemur í ljós að árið 1995 var hlutfallið á Íslandi 19%, í Danmörku 33,7%, Finnlandi 32,8%, Noregi 27,4 og Svíþjóð 35,8%.
Þótt Íslendingar búi við vel útfært og uppbyggt lífeyrissjóðakerfi sem hefur burði til að taka við hluta almannatryggingakerfisins þegar fram í sækir kemur það stórum hópi lífeyrisþega ekki til góða. Úttekt Stefáns leiðir í ljós að fjöldi eftirlaunaþega náði ekki að safna réttindum í lífeyrissjóði áður en lífeyrisaldri var náð og því er fátækt hjá öldruðum illu heilli veruleg hér á landi. Sama gildir um öryrkja en 43% þeirra fá engar greiðslur úr lífeyrissjóðum og þurfa að lifa á tryggingabótum einum.
Herra forseti. Athyglisvert er að fyrir tilverknað stjórnvalda hafa kjör bótaþega að ýmsu leyti versnað til muna með meiri velsæld. Frá 1993 hafa grunnlífeyrir og tekjutrygging hækkað helmingi minna en lágmarkslaun. Á sama tíma hefur frítekjumark atvinnutekna hækkað helmingi minna en launavísitala og skattleysismörk hafa þróast þannig að lífeyrisþegi sem lifir einungis á tryggingabótum þarf nú að greiða 40 þús. kr. árlegan skatt af bótunum. Velferðarkerfið þarf að styrkja með tilliti til þessara hópa.
Herra forseti. Fjárln. hefur nánast eingöngu fjallað um útgjaldahlið frv. en tekjuhlið þess bíður 3. umræðu. Sömuleiðis á eftir að fjalla nánar um lánsfjárgrein frv. og heimildagrein þess, svo og nokkur önnur atriði. Minni hlutinn styður ýmsar af breytingartillögum meiri hlutans en mun jafnframt flytja tillögur sem sýna þær áherslur sem hann vill ná fram við ráðstöfun ríkistekna.
Herra forseti. Ég hef gert grein fyrir áliti minni hluta fjárln. sem Einar Már Sigurðarson, Jón Bjarnason og Össur Skarphéðinsson undirrita.