Fjárlög 2000

Mánudaginn 13. desember 1999, kl. 12:29:38 (2834)

1999-12-13 12:29:38# 125. lþ. 43.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 125. lþ.

[12:29]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Þessi brtt. snertir varnarmálaskrifstofu utanrrn. og hjá friðelskandi þjóð sem við Íslendingar erum teljum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs framlög til varnarmála utanrrn. allt of há. Okkur stendur nær að leggja meira fé til friðar- og mannúðarmála og því leggjum við til að framlög til varnarmálaskrifstofu verði lækkuð um 50 millj.