Fjárlög 2000

Mánudaginn 13. desember 1999, kl. 13:02:47 (2841)

1999-12-13 13:02:47# 125. lþ. 43.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 125. lþ.

[13:02]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Til þess að forða öllum misskilningi þá er hér verið að tala um að breikka einbreiðar brýr en ekki að tvöfalda fjölda þeirra. Ég vildi láta þetta koma fram í þessum hópi til að tryggja örugglega að þarna verði ekki um misskilning að ræða.

Öll vitum við um þá gífurlegu hættu sem er víða á þjóðvegum landsins á einbreiðum brúm, þau hörmulegu slys og áhættu sem er í umferð. Þetta er aðeins lítil viðbót, lítið átak og ég vil skora á hv. þm. að samþykkja þetta.