Fjárlög 2000

Mánudaginn 13. desember 1999, kl. 13:06:52 (2844)

1999-12-13 13:06:52# 125. lþ. 43.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 125. lþ.

[13:06]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Samkvæmt skýringum á a-lið, 8 millj. kr., er nefnd álversbryggja á Reyðarfirði. Okkur finnst þetta vera ansi snemmt og við erum andvíg þessu. Það má bæta bryggjur og hafnaraðstöðu en ekki endilega til álvera að svo komnu máli.