Fjárlög 2000

Mánudaginn 13. desember 1999, kl. 13:31:49 (2853)

1999-12-13 13:31:49# 125. lþ. 43.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 125. lþ.

[13:31]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Hér er verið að skerða lögbundin framlög til mikilvægra verkefna sem taka til margra sjóða. Það er t.d. ekki ljóst hverjar eru skuldbindingar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem á að fara að skerða hér og fleiri slíkra sjóða sem standa að menningar- og velferðarmálum. Því segjum við nei.