Fjáraukalög 1999

Þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 18:34:42 (2890)

1999-12-14 18:34:42# 125. lþ. 45.1 fundur 117. mál: #A fjáraukalög 1999# frv. 129/1999, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 125. lþ.

[18:34]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á hversu vel tókst til með sölu á bréfum í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. Það var gríðarlega stór sala. En vegna þess hvernig háttaði til með þá sölu var kostnaðurinn við hana afar lítill.