Lokaumræða fjárlaga

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 10:35:25 (2910)

1999-12-15 10:35:25# 125. lþ. 46.91 fundur 219#B lokaumræða fjárlaga# (aths. um störf þingsins), JónK
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[10:35]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd fjárln. þakka hv. þm. fyrir að hafa vakið athygli á því að fjárlagaumræðan í dag er á þeim tíma sem þingsköp segja til um. Því þurfum við að halda í framtíðinni. Það er fagnaðarefni, og ég á eftir að koma að því síðar í dag þegar umræðan verður að svo skyldi hafa tekist til.

Ég vildi aðeins þakka fyrir hönd nefndarinnar að vakin skyldi hafa verið athygli á þessu.