Lokaumræða fjárlaga

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 10:42:08 (2916)

1999-12-15 10:42:08# 125. lþ. 46.91 fundur 219#B lokaumræða fjárlaga# (aths. um störf þingsins), JónK
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[10:42]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði sem ég vildi láta koma fram varðandi dagsetninguna sem er í þingsköpum. Við eigum auðvitað að hafa þann metnað fyrir störf þingsins að halda þær dagsetningar og setja okkur það og aðrar stofnanir í þjóðfélaginu verða að miða starf sitt við að umræðna fari fram 15. desember. Ljóst er að það hafa kannski ekki allir áttað sig á því að við mundum standa við þessa dagsetningu núna en það liggur þá ljós fyrir sá vilji okkar að hafa þann metnað fyrir þingið og hafa þann aga í störfum þingsins að þessu leyti og ég vil stuðla að því að svo verði áfram.