Fjárlög 2000

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 15:48:31 (2989)

1999-12-15 15:48:31# 125. lþ. 46.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[15:48]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að taka upp umræðu um Schengen í þessu andsvari en get eigi að síður ekki annað en getið þess að hér er um að ræða vegabréfasamband Evrópuþjóða. Við höfum reynslu af slíku vegabréfasambandi milli Norðurlandanna um áraraðir sem hefur innsiglað það góða samstarf sem við höfum átt þar og m.a. á þeim forsendum fylgi ég þessum áformum. Að öðru leyti ætla ég ekki að fara að taka upp efnislega umræðu um það, allra síst í andsvari. Það gefast tækifæri til þess síðar.