Fjárlög 2000

Miðvikudaginn 15. desember 1999, kl. 15:49:29 (2990)

1999-12-15 15:49:29# 125. lþ. 46.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2000# frv. 124/1999, Frsm. 1. minni hluta EMS
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 125. lþ.

[15:49]

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson):

Herra forseti. Rétt er að fagna því í upphafi að við ræðum fjárlög til 3. umr. á þeim degi sem áætlun þingsins gerði ráð fyrir. Það væri í raun betur að aðrar áætlanir sem tengjast þessu máli væru jafnvissar og jafnöruggar og hefðu staðist jafn vel.

Herra forseti. Meginmarkmið frv. ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir árið 2000 var að treysta stöðugleikann í sessi, stuðla að áframhaldandi hagvexti og batnandi lífskjörum í landinu. Þá var einnig ætlunin að nýta þann byr sem uppsveiflan hefur skapað til að treysta stöðu ríkisfjármála. Þá var stefnt að því að skila ríkissjóði með meiri rekstrarafgangi á árinu 2000 en á yfirstandandi ári.

Víða í frv. var dásömuð sú efnahagsstjórn sem ríkisstjórnin hefur viðhaft á undanförnum árum og gefið til kynna að ríkisstjórnin hefði góð tök á efnahagsmálunum. Þá eru ýmsar hættur í efnahagsþróuninni skilgreindar og talið að brugðist hafi verið við þeim á viðeigandi hátt. Öll þessi skýjaborg riðaði til falls þegar frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999 var lagt fram og síðan hrundi skýjaborgin endanlega þegar vandinn í heilbrigðiskerfinu var upplýstur. Annaðhvort var vandinn ríkisstjórninni dulinn, sem ber þá vott um visst kæruleysi í fjármálastjórninni, eða stjórnvöld vissu um vandann en héldu honum leyndum en það er í raun enn alvarlegra mál.

Samkvæmt frv. til fjárlaga fyrir árið 2000 var ætlað að gjöld næmu 190 milljörðum kr. og að tekjur næmu 205 milljörðum kr. Tekjuafgangur var þannig áætlaður 15 milljarðar kr. Síðan frv. var lagt fram hafa útgjöldin verið aukin um 3,2 milljarða kr. Um 2,3 milljarða kr. má rekja til vanda heilbrigðisstofnana. Tekjur ríkissjóðs hafa einnig hækkað frá því að frv. var lagt fram og eru nú áætlaðar 209,9 milljarðar kr. Þetta þýðir að tekjuafgangur er áætlaður um 16,7 milljarðar kr. eða sem nemur 1,7 milljörðum kr. hærri fjárhæð en gert var ráð fyrir í frv. Þetta er vissulega mikill afgangur en að margra mati ekki nægur eins og vikið verður að síðar.

Áætluð niðurstaða yfirstandandi árs sýnir að ekki aðeins er áætlanagerðin veik heldur einnig allt eftirlit með fjárreiðum ráðuneyta og stofnana. Því miður hefur ekkert komið fram sem styrkir 1. minni hluta fjárln. í því að hér verði einhver stefnubreyting á. Þá er enn ítrekuð sú skoðun 1. minni hluta fjárln. að ekki séu öll kurl komin til grafar varðandi rekstrarvanda fjölmargra stofnana í ríkiskerfinu. Áður í umræðunni hefur verið bent á að margt bendi til að enn sé óleystur vandi í heilbrigðiskerfinu og að í menntamálunum sé verulegur vandi hjá mörgum framhaldsskólum og skólum á háskólastigi. Má búast við að í fjárlögum fyrir árið 2001 þurfi að taka á þeim vanda.

Herra forseti. Ég vek athygli á því að hér er sagt að búast megi við því í fjárlögum fyrir árið 2001 að tekið verði á þessum vanda. Ekki er gert ráð fyrir því eins og við höfum séð allt of oft að á slíkum vanda sé tekið í fjáraukalögum vegna þess að þessi vandi er a.m.k. að hluta til fyrirsjáanlegur nú og á því ekki heima í fjáraukalögum næsta árs heldur í fjárlögum fyrir árið 2001.

Herra forseti. Ég minntist á hugsanlegan óleystan vanda í heilbrigðiskerfinu og þegar bornar eru saman áætlaðar niðurstöðutölur fyrir árið 1999 í heilbrigðisstofnunum og því sem gert er ráð fyrir í frv. til fjárlaga og brtt. sem fram hafa verið lagðar af meiri hluta fjárln. fyrir árið 2000 kemur í ljós að einungis er gert ráð fyrir 2,7% hækkun á heilbrigðisstofnunum. Ljóst má vera að það mun ekki duga miðað við þær spár og þær forsendur sem lagðar eru í frv. þannig að einhvers staðar er eitthvað sem hefur ekki verið upplýst. En, herra forseti, í þessu samhengi er rétt að vekja athygli á því að við 2. umr. um fjárlögin kom mjög skýrt fram í máli ýmissa hv. stjórnarþingmanna að áður en 3. umr. færi fram um fjárlög mundi fyrir liggja, a.m.k. eins og við flestir skildum svokallaðar verklagsreglur sem yrðu til umræðu í fjárln. á milli umræðna og þar yrði einnig rætt í nefndinni um aðkomu nefndarinnar að því aukna eftirliti sem ætlað er að hafa með heilbrigðiskerfinu. Því miður, herra forseti, höfum við ekki, a.m.k. í minni hluta fjárln., séð neitt af þessum reglum. Að vísu kom minnisblað eða frumgagn að þessum verklagsreglum inn á borð nefndarmanna á einum fundi nefndarinnar en sökum þess hve rýrt innihaldið var var því vísað umsvifalaust aftur til föðurhúsanna.

Herra forseti. Þetta vekur að sjálfsögðu ýmsar spurningar og áhyggjur vegna þess að nú er komið að lokum þessa árs og eins og bent hefur verið á hefur þessi vandi verið mörgum ljós um þó nokkurt skeið og það er því enn brýnna að brugðist sé við og staðið þannig að málum á næsta ári að við þurfum ekki að standa í svipuðum sporum í lok næsta árs.

Herra forseti. Ég minntist einnig á að margt benti til þess að í menntakerfinu væri einnig vandi sem hefði ekki verið tekið á. Minnst hefur verið á áður í umræðunum að margt bendi til þess í tölum að nokkur vandi hafi verið skilinn eftir á háskólastigi. Sérstaklega er hægt að nefna í þessu sambandi Kennaraháskóla Íslands en ítrekað hefur verið spurt um það í fjárln. hvernig þau mál stæðu vegna þess að þegar rektor skólans kom á fund nefndarinnar var rætt um að á næstu dögum eða vikum yrði undirritaður sérstakur samningur milli menntmrn. og Kennaraháskóla Íslands. Því miður hafa engar fréttir borist af þeim samningi og því virðist vandi, sem blasir við þegar tölur eru skoðaðar um m.a. Kennaraháskóla Íslands, ekki vera leystur og bíða því lausnar á næsta eða þarnæsta ári.

Þá bendir líka ýmislegt til þess að enn sé nokkur vandi hjá hinum almennu framhaldsskólum. Í því samhengi er rétt að rifja upp að þegar fulltrúar úr menntmrn. komu á fund fjárln. var gert ráð fyrir að starfshópur sem er starfandi á vegum menntmrn. til þess að fjalla um rekstrarvanda lítilla framhaldsskóla á landsbyggðinni mundi ljúka störfum fyrir áramót en samkvæmt upplýsingum sem ég hef fengið hefur starfshópurinn ekki lokið störfum og mun ekki ljúka störfum fyrir áramót þannig að enn er þar eitt sem bendir til að við munum sigla inn á næsta ár án þess að tekið verði á vanda hinna almennu framhaldsskóla. Því er það ítrekað hér, herra forseti, að við megum búast við að í fjárlögum fyrir árið 2001 þurfi að taka á þessum vanda.

Frv. til fjárlaga fyrir árið 2000 gerði ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs næmu 205 milljörðum kr. og að þær ykjust um rúma 10 milljarða frá áætlaðri niðurstöðu ársins 1999. Við framlagningu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999 var hins vegar áætlað að tekjur ykjust um 9,9 milljarða. Endanleg tala varð hins vegar 23 milljarða kr. tekjuauki á árinu 1999. Þar sem reynsla undanfarinna ára sýnir að tekjur falla tiltölulega svipað til innan ársins vekur það nokkra undrun að stærri hluti tekjuaukans skyldi ekki koma fram strax í upphaflegu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999.

Stuttur tími hefur gefist til að fara yfir tekjuhlið frv. þar sem þær breytingar, sem nú eru lagðar til, bárust fjárln. seint og illa gekk að fá rökstuðning frá fjmrn. fyrir þeim. Ætla mætti að framkvæmdarvaldið teldi að þessi mikilvægi hluti fjárlaga eigi helst ekki að vera til umræðu í fjárln. og nefndin eigi að taka við tillögum þar að lútandi án mikillar gagnrýni.

Herra forseti. Þetta er afar sérstakt vegna þess að auðvitað hlýtur tekjuáætlunin að vera mikilvægur grunnur fyrir fjárlögin í heild sinni. Það var einnig afar athyglisvert að það voru helstu afsakanir fulltrúa úr fjmrn. að það virtist vera að fjárln. væri að vinna verk sín á áætluðum tíma. Það verður að segjast, herra forseti, að það er ekki traustvekjandi að upplifa það að fulltrúar, embættismenn í fjmrn., líti á það sem undarlega hluti að unnið sé eftir áætlun. Það verður að segjast að við vonum að áætlanir þessara ágætu manna taki ekki mið af þessu heldur séu þær þá traustari en margar þær sem þeir hafa gert áður.

Sú breyting hefur orðið í frv. til fjárlaga frá því sem áður var að nú er öllum magntölum sleppt. Áður fyrr var t.d. upplýst um áætlaðan fjölda innfluttra bíla og hversu margir lítrar af bensíni reiknað væri með að fluttir yrðu til landsins. En eftir því sem upplýsingatækninni fleygir fram virðist draga úr þeim upplýsingum í frv. til fjárlaga sem geta hjálpað til við að leggja mat á þær tillögur sem þar koma fram. Þá má einnig benda á að einfalt væri að gera grein fyrir þeim fyrirtækjum sem ætlað er að greiði arð í ríkissjóð.

Það skiptir máli að mati 1. minni hluta fjárln. að í frv. til fjárlaga sé greint á milli magn- og verðbreytinga þegar fjallað er um tekjur. Hvort tveggja eru mikilvægar upplýsingar þegar meta þarf frávik frá tekjuáætluninni.

[16:00]

Fyrsti minni hluti fjárln. hvetur til úrbóta í þessum efnum og telur nauðsynlegt að framvegis komi brtt., jafnt vegna útgjalda sem tekna, fram tímanlega og þeim fylgi ítarlegar skýringar.

Herra forseti. Það er um margt merkilegt að bera saman þá vinnu sem við höfum unnið í fjárln. á síðustu mánuðum og þá vinnu sem fram fer m.a. við fjárhagsáætlunargerð hjá sveitarfélögum. Ég held, herra forseti, að fá sveitarfélög mundu láta bjóða sér ýmsar þær upplýsingar sem hæstv. fjárln. hefur þurft að búa við. Og það er sérstaklega athyglisvert í ljósi ummæla hæstv. forsrh. sem gaf það í skyn að fjármálaleg staða sveitarfélaganna væri einn helsti efnahagsvandi þjóðarinnar. Herra forseti. Ég held að efnahagsvandi þjóðarinnar leynist annars staðar en hjá sveitarfélögum landsins.

Í frv. til fjárlaga var gert ráð fyrir að lántökur næmu 5 milljörðum kr. og áætlað var að greiða niður langtímalán að upphæð 27,5 milljarðar kr. Miðað við fyrirsjáanlegan viðskiptahalla á næsta ári, ásamt þeirri staðreynd að ekki dregur úr neyslu, er alveg ljóst að þessi áætlun stenst ekki og að lántökur ríkissjóðs verði talsvert umfram það sem áætlað er og að sama skapi verði ekki greitt eins mikið niður af erlendum lánum og gert var ráð fyrir. Liggur þá ekki annað fyrir en að afgangurinn verði frystur inni hjá Seðlabankanum.

Að venju byggist tekjuáætlun fjárlaga á þjóðhagsspá. Minni hluti fjárln. hefur oft á undanförnum árum bent á að þjóðhagsspá hafi reynst fjarri lagi. Í framhaldsáliti minni hlutans við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1999 kom fram sú skoðun hans að í þjóðhagsáætlun fyrir það ár fælist m.a. vanmat á innflutningi og fjárfestingu. Það hefur síðan komið í ljós að fjárfesting dróst saman um 0,1% en spáð hafði verið 5% samdrætti. Spáð hafði verið að innflutningur ykist um 1% en hann jókst um 3,4%.

Þjóðhagsspáin sem birtist í frv. til fjárlaga fyrir árið 2000 hefur nú verið endurmetin. Forsendur endurmetinnar spár byggja á því að fylgt verði aðhaldssamri stefnu bæði í peningamálum og ríkisfjármálum. Nú er gert ráð fyrir að verulega dragi úr hagvexti á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að einkaneyslan aukist um 3% í stað 2,5% í frv. Á yfirstandandi ári stefnir í að einkaneyslan aukist um 7%. Áætlað er að fjárfesting aukist um 2,7% en nú stefnir í að hún dragist saman um 1,1% á yfirstandandi ári. Hér mun valda mestu smíði nýs hafrannsóknaskips. Þá gerir þjóðhagsspáin ráð fyrir að inn- og útflutningur aukist hlutfallslega jafnmikið eða um 1,9%. Spáin gerir því ráð fyrir mun minni aukningu en nú stefnir í á árinu 1999 en áætlað er að innflutningur aukist um 6% og útflutningur aukist um 6,9%. Það bendir því ekkert til samkvæmt spánni að lát verði á þenslunni í efnahagslífinu. Segja má að allar tölur í þjóðhagsspánni geri ráð fyrir óhagstæðari þróun mála en lagt var upp með í frv. til fjárlaga fyrir árið 2000.

Að mati 1. minni hluta fjárln. er nauðsynlegt að þessari þróun verði snúið við og sparnaður í þjóðfélaginu verði aukinn. Seðlabankinn telur að til lengri tíma litið vanti um 20 milljarða kr. í þjóðhagslegan sparnað. Í því ljósi hefði tekjuafgangur á fjárlögum ársins 2000 þurft að vera um 30 milljarðar kr. eða tæplega tvöfalt meiri en nú er gert ráð fyrir.

Ýmsar blikur eru á lofti sem ástæða er til að óttast. Nú er spáð að viðskiptahallinn verði um 38 milljarðar kr. á árinu 1999 í stað þeirra 28 milljarða kr. sem áætlaðir voru í byrjun október. Þetta sýnir að hlutirnir gerast hratt á þenslutímum. Ekki er fyrirsjáanlegt að úr viðskiptahallanum dragi á næsta ári og reyndar er því spáð að hann eigi enn eftir að aukast og verði um 38,5 milljarðar kr. í árslok 2000. Þetta eykur enn þrýstinginn í þjóðfélaginu og ekki má mikið út af bera í undirstöðuatvinnuvegunum til að illa fari. Það er því ekki fyrirsjáanleg nein hjöðnun í þjóðfélaginu á næsta ári.

Ekki lítur dæmið betur út þegar kemur að skuldasöfnuninni. Nú er talið að heildarskuldir hins opinbera á næsta ári nemi tæpum 53% af vergri landsframleiðslu. Þetta er svipað hlutfall og var á árinu 1997. Ríkisstjórnin er í þeirri sérkennilegu efnahagslegu sjálfheldu að eiga talsverðan afgang á fjárlögum en geta ekki nýtt hann til að greiða niður skuldir, hvorki innan lands, vegna hættunnar á aukinni þenslu, né erlendis vegna gjaldeyrisstöðunnar.

Herra forseti. Það er einnig áhyggjuefni að markaðurinn virðist ekki bregðast við afkomu ríkissjóðs eins og ætla mætti. Þetta þýðir að aðgerðir og áætlanir í ríkisfjármálum vekja ekki traust hjá almenningi og fyrirtækjum. Því þarf að beita mun meira aðhaldi í peninga- og vaxtamálum ef takast á að vinna gegn þenslunni og viðskiptahallanum og auka tiltrú markaðarins á stjórn ríkisfjármála.

Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi í orði tekið undir aðvaranir varðandi þróun efnahagsmála er ekki að sjá að þær aðvaranir hafi ráðið för í því fjárlagafrv. sem nú er komið til afgreiðslu á Alþingi. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar er mikil. Fjárlagafrv. gerir ráð fyrir stórauknum útgjöldum og er ekki að sjá að dragi úr þenslu. 1. minni hluti fjárln. tekur undir með þeim hagfræðistofnunum sem bent hafa á að miðað við þær efnahagslegu forsendur sem gert er ráð fyrir á árinu 2000 er þörf á meiri tekjuafgangi en gert er ráð fyrir í þeim tillögum sem fyrir liggja frá stjórnarmeirihlutanum. Eins og áður segir byggist endurskoðuð þjóðhagsspá á að fylgt sé aðhaldssamri stefnu bæði í peningamálum og í ríkisfjármálum. 1. minni hluti fjárln. óttast að væntanleg fjárlög fyrir árið 2000 uppfylli ekki þær væntingar sem hin endurskoðaða þjóðhagsspá gerir til efnahagsstjórnar í landinu.

Herra forseti. Ég hef lokið að mæla fyrir áliti 1. minni hluta fjárln. en undir það álit rita Einar Már Sigurðarson, Össur Skarphéðinsson og Guðmundur Árni Stefánsson.