Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Mér fannst hæstv. ráðherra leggjast í mikla vörn í ræðu sinni vegna stöðu efnahags- og ríkisfjármála og eyða tíma sínum í hagfræðikennslustund fyrir þingmenn, um hvernig verja ætti þessum tekjuafgangi. Ég hefði hefði frekar búist við að ráðherrann sneri sér að því að taka undir með okkur stjórnarandstæðingum sem lítum mjög alvarlegum augum það hættuástand sem alls staðar blasir við í þjóðfélaginu. Ljóst er að þessi afgangur, t.d. á þessu ári, er fenginn vegna 23 milljarða tekjuauka sem hefur komið núna til viðbótar því sem var á fjárlögum. Það er ekki mikið afrek að skila slíkum tekjuafgangi. Og 5 milljarða tekjuauki sem kemur nú við lokaafgreiðslu fjárlaga gerir ekki nema auka afganginn um 1,7 milljarða miðað við það sem frv. gerði ráð fyrir. Viðskiptahallinn er auðvitað mjög alvarlegur, hefur aukist úr 7 milljörðum í 38. Ég hefði haldið að hæstv. ráðherra mundi ræða frekar um það við okkur heldur en vera í hagfræðikennslu fyrir þingmenn.
En hann svaraði ekki því sem ég spurði hann um varðandi rekstrarhalla á Íbúðalánasjóði.