Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Hér er gert ráð fyrir 50 millj. kr. fjárframlagi til að setja á stofn hvíldarheimili eða skammtímavistun fyrir geðsjúk börn og börn með alvarlegar hegðunartruflanir til að létta undir með fjölskyldum þeirra. Um er að ræða um 20 börn sem greinst hafa með alvarlega geðsjúkdóma en flestir þessara ungu sjúklinga dveljast í heimahúsum á ábyrgð foreldra sinna þrátt fyrir að hafa verið greindir með mjög alvarlegar geðtruflanir og geðsjúkdóma. Það er mjög brýnt og það er réttlætismál að auðvelda þessu fólki lífsbaráttuna sem er erfið.