Skattfrelsi norrænna verðlauna

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 15:21:50 (3142)

1999-12-16 15:21:50# 125. lþ. 47.10 fundur 4. mál: #A skattfrelsi norrænna verðlauna# frv. 126/1999, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[15:21]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er lítið skref í að lögbinda þessar undanþágur sem hér um ræðir. En í máli hv. þm. hér áðan var fullyrt að þarna væri í flestum tilvikum ef ekki öllum um hátekjufólk að ræða. Ég vil bara, virðulegi forseti, láta það koma fram að ég dreg í efa að sú fullyrðing standist.