Ættleiðingar

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 18:24:18 (3181)

1999-12-16 18:24:18# 125. lþ. 47.14 fundur 68. mál: #A ættleiðingar# (heildarlög) frv. 130/1999, ÁMöl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[18:24]

Ásta Möller (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem kom fram í máli hv. þm. að umræða er af hinu góða og ég tel að sú umræða sem hefur farið fram á undanförnum mánuðum og árum um réttindi samkynhneigðra hafi breytt viðhorfum verulega.

Varðandi afstöðu mína og framgang þessara mála þá ætla ég ekki að fara að endurtaka það. Það liggur alveg ljóst fyrir.