Ættleiðingar

Fimmtudaginn 16. desember 1999, kl. 19:09:28 (3201)

1999-12-16 19:09:28# 125. lþ. 47.14 fundur 68. mál: #A ættleiðingar# (heildarlög) frv. 130/1999, LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 125. lþ.

[19:09]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hefði kannski getað fallið frá orðinu því að hv. þm. Valgerður Sverrisfóttir, sem hefur verið formaður eða verið starfandi formaður allshn. á meðan þetta mál var unnið, hefur nú eiginlega svarað þeirri spurningu sem ég ætlaði að leggja hér fyrir hana. Ég skynja það að skilningur hennar er sá hinn sami og minn, að við munum afgreiða þetta mál frá þinginu áður en við ljúkum því hér í vor. Ég heyrði það á hv. þm. að hún er sama sinnis þannig að ég geri ráð fyrir því að þessi orð muni standa.