Vitamál

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 11:56:43 (3222)

1999-12-17 11:56:43# 125. lþ. 48.15 fundur 57. mál: #A vitamál# (heildarlög) frv. 132/1999, Frsm. meiri hluta ÁJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[11:56]

Frsm. meiri hluta samgn. (Árni Johnsen) (andsvar):

Herra forseti. Það er líka rétt að árétta þann misskilning hv. þm. Jóns Bjarnasonar að það er á engan hátt verið að búa til einhverjar nýjar stofnanir eða skrifstofur til að innheimta það gjald sem hér er um að ræða. Það eru sýslumenn landsins sem sinna þessari þjónustu og það ætti hv. þm. Jón Bjarnason að vita.