Frsm. 1. minni hluta samgn. (Jón Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Það er verið að draga alla innheimtu hingað til Reykjavíkur. Ég veit ekki nákvæmlega hvort þessi innheimta er enn þá hjá sýslumönnunum en hún er öll að færast hingað til Reykjavíkur. En ég skal alveg hiklaust, herra forseti, standa með hv. þm. Árna Johnsen, frsm. og formanni samgn., í hverju því sem hann leggur til í sönnum og góðum verkefnum sem flutt verða út á land og unnin þaðan. Því skal ég virkilega standa með hv. þm. í.