Framleiðsluráð landbúnaðarins

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 16:28:29 (3273)

1999-12-17 16:28:29# 125. lþ. 48.12 fundur 205. mál: #A Framleiðsluráð landbúnaðarins# (breyting ýmissa laga) frv. 112/1999, Frsm. minni hluta GÁS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[16:28]

Frsm. minni hluta landbn. (Guðmundur Árni Stefánsson) (andsvar):

Herra forseti. Aðeins örstutt. Það er sem ég sjái Lífeyrissjóð bænda afþakka 190 milljónir af því að það skipti engu máli. Ég trúi því þvert á móti að auðvitað skipti það máli varðandi afkomu sjóðsins til lengri og skemmri tíma litið þannig að ég skil ekki alveg þessa röksemdafærslu hv. þm.