Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það voru einmitt þessi orð og önnur fyrr fallin um kostnaðinn í sambandi við einstaka þætti í rekstri þessa kerfis sem komu mér til þess að fara upp í andsvar. Það var nákvæmlega það sem ég var að reyna að vekja athygli á og vara við í sambandi við þá leið sem menn eru að einhverju leyti að reyna að byggja grunn undir með þessum lögum. Það er það vandamál sem mun ævinlega reynast mjög snúið, þ.e. að greina niður í kostnaðarlega rétta þætti einstaka hluta af rekstri slíks kerfis og þjónustu. Það er það sem ég held að muni valda endalausum deilumálum og kærumálum milli samkeppnisaðilanna og rekstraraðila netsins ef það er á einni hendi vegna þess að það er nánast óhugsandi að finna út með neinum óyggjandi hætti hvað heimtaugin kostar nákvæmlega eða lögnin inn í húsið sem hluti af mjög stóru samsettu kerfi. Ég spái því að mönnum muni ganga mjög illa að vega það niður á algerlega kostnaðarlega rétta þætti.
Það er ekki langt síðan Póstur og sími var þannig fyrirtæki að menn höfðu ekki miklar áhyggjur af því hvort einstakir þættir í starfseminni voru nákvæmlega rétt verðlagðir eða ekki vegna þess að þetta var ein stór púllía. Það gátu jafnvel verið ákveðin rök fyrir því miðað við þá stöðu sem fyrirtækið hafði, að færa þarna á milli og það var ekkert að því í sjálfu sér meðan fyrirtækið sá eitt alfarið um þessa hluti. Svo fór samkeppni að koma til sögunnar í einstökum afmörkuðum þáttum og þá fóru menn að reyna að greina kostnaðinn við þá hluta eins og sölu á notendabúnaði og meira að segja kröfðust menn þess að auglýsingar í símaskránni yrðu ekki ókeypis fyrir þetta fyrirtæki í samkeppni við aðra o.s.frv. En reynslan er sú að menn geta lent í miklum erfiðleikum við að vega og meta þessa þætti kostnaðarlega rétta. Hvort sanngjarnt er að hækka fastagjald eða ekki skal ég ekki deila um en ég spái hinu að mönnum muni reynist það erfið gata að ganga að vigta þetta allt saman rétt.