Málefni fatlaðra

Föstudaginn 17. desember 1999, kl. 23:20:44 (3345)

1999-12-17 23:20:44# 125. lþ. 48.25 fundur 274. mál: #A málefni fatlaðra# (ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs 2000) frv. 116/1999, Frsm. minni hluta GÖ
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[23:20]

Frsm. minni hluta félmn. (Guðrún Ögmundsdóttir):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, með síðari breytingum. Þetta er nefndarálit frá minni hluta félmn. og hér stendur, með leyfi forseta:

,,Frumvarp þetta er lagt fram í samræmi við fjárlagafrumvarp fyrir árið 2000. Gerð er grein fyrir málinu í nefndaráliti minni hlutans um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 12/1952, um ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkissjóðs til vinnuheimila, með síðari breytingum, 273. mál. Þar kemur fram að minni hlutinn er andvígur fyrirhugaðri skerðingu á mörkuðum tekjum til Framkvæmdasjóðs fatlaðra. Minni hlutinn gerir á hinn bóginn ekki sérstakar athugasemdir við að greitt sé úr sjóðnum til þess sem frumvarpið gerir ráð fyrir eins og verið hefur að undanförnu enda ekki um stórfelld fjárútlát að ræða, eða væri í öllu falli ekki ef sjóðurinn væri óskertur.

Minni hlutinn mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.``

Undir þetta nefndarálit skrifa sú sem hér stendur, hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og Kristján Möller.