1999-12-18 01:24:49# 125. lþ. 48.13 fundur 224. mál: #A Byggðastofnun# (heildarlög) frv. 106/1999, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[25:24]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og kom fram í máli mínu þá hef ég mjög miklar efasemdir um þetta. Það kom fram í máli mínu við 1. umr. um frv. Ég var eingöngu að árétta það álit og efasemdir mínar. Í vinnu hv. allshn. hafa þessar athugasemdir greinilega ekki verið skoðaðar. Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé óskeikul en þetta er samt sem áður mín skoðun. Ég tel að þessu hefði verið betur komið fyrir öðruvísi en virði niðurstöðu allshn.