1999-12-18 01:27:05# 125. lþ. 48.13 fundur 224. mál: #A Byggðastofnun# (heildarlög) frv. 106/1999, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 125. lþ.

[25:27]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get ekki séð að þessar efasemdir komi mjög skýrt fram í nál. allshn. Það verður nú ekki séð. Þar eru efasemdir um eina málsgrein í 9. gr. frv. Aðrar athugasemdir sjást ekki í þessu nál. Ég hlýt að draga þá ályktun að allshn. hafi komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta formið sem við gætum haft á þessari stofnun. Eins og ég sagði áðan þá virði ég þá niðurstöðu.