Byggðastofnun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 11:15:55 (3411)

1999-12-18 11:15:55# 125. lþ. 49.2 fundur 224. mál: #A Byggðastofnun# (heildarlög) frv. 106/1999, VS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[11:15]

Frsm. allshn. (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Í þessum málslið kemur fram að hæstv. iðnrh. skipar sjö menn í stjórn þessarar stofnunar sem segir ekkert um að það verði sjö framsóknarmenn eins og hv. þm. hefur reynt að koma á framfæri í umræðunni. Ég bendi á það að hv. þm. situr í stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins, ekki kosinn af Alþingi heldur skipaður af landbrh., reyndar af hæstv. fyrrv. landbrh., Guðmundi Bjarnasyni. Hann er ekki valinn af Alþingi, hann er skipaður af ráðherra.