Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 15:20:39 (3455)

1999-12-18 15:20:39# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, KF (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[15:20]

Katrín Fjeldsted:

Herra forseti. Ég þarf ekki að nota þrjár mínútur í það sem ég ætla að segja hér en ég vil bera það af mér og mótmæla því að hér komi upp þingmaður og lýsi því yfir hvernig ég ætli að greiða atkvæði við væntanlega afgreiðslu á þessu máli. Ég mótmæli því, herra forseti. Mér finnst það í hæsta máta óviðeigandi og biðst undan slíku. (KPál: Þú ert ekki að mótmæla ...)