Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 17:25:52 (3484)

1999-12-18 17:25:52# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, KPál (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[17:25]

Kristján Pálsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil gera athugasemd við það að hv. þingmenn skuli geta komið hér upp og borið af sér sakir en viðurkenni í rauninni allt sem um var að ræða. Ég kalla það ekki að bera af sér sakir. Það kalla ég að misnota aðstöðu sína undir þessum þingskapalið, þ.e. að bera af sér sakir.