Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Laugardaginn 18. desember 1999, kl. 18:52:22 (3496)

1999-12-18 18:52:22# 125. lþ. 49.19 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 125. lþ.

[18:52]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég efast ekki um að hv. þingmenn í iðnn., eins og hv. formaður gat um áðan, meta þetta mál á einhvern hátt og hafa gert það í endanlegri afstöðu sinni í málinu. Það er einungis við það mat sem leiðir skilja.

Meiri hluti iðnn. vill fara í áframhaldandi framkvæmdir án þess að fara í þetta mat. Öll þau rök sem ég rakti hér áðan og lífsskoðun mín bendir til þess að við eigum að fara í þetta mat, að við séum að fórna slíkum hagsmunum að við getum ekki gert það án mats. Þarna skilja leiðir milli mín annars vegar og þeirra. En hvað við getum gert annað en standa hér og geta ekki annað veit ég ekki.