Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég taldi eftir fréttaflutning helgarinnar að þetta mál væri úr sögunni og að hv. þm. Hjálmar Árnason mundi sýna þann drengskap að koma hingað og biðja þennan embættismann afsökunar. Það kom fram í tveimur sjónvarpsstöðvum í gær að hæstv. umhvrh. telur að hér hafi verið um misskilning að ræða, og það er út af fyrir sig skiljanlegt þó að mönnum verði á einhver glöp. En ég las það síðan í DV í morgun að hv. þm. Hjálmar Árnason telur að hér hafi ekki verið um neinn misskilning að ræða og hann situr fast við sinn keip. Hann ætlar sér sem sagt að naga mannorðið af þessum embættismanni án þess að hann geti nokkrum vörnum við komið.
Nú liggur það fyrir, herra forseti, að embættismaðurinn telur að hann hafi réttinn allan sín megin og hann hefur sagt í fjölmiðlum að hann sé búinn að senda greinargerð um málið til formanns iðnn. Það var hv. þm. Hjálmar Árnason sem dró þetta mál inn í umræðuna. Þess vegna er það nauðsynlegt til að við getum lokið þessari umræðu að við höfum öll skjöl málsins. Við þingmenn verðum að hafa sömu málsgögn og hv. þm. Hjálmar Árnason. Þess vegna óska ég eftir því, herra forseti, að forsetadæmið beiti sér fyrir því að við hentugt tækifæri, til að mynda í hádeginu, verði iðnn. kölluð saman og hv. formaður iðnn. Hjálmar Árnason afhendi nefndarmönnum þau gögn. Ella verðum við að halda áfram með öðrum hætti að krefjast þessara gagna, en þetta eru málsskjöl sem við þurfum að hafa engu síður en hv. þm. til að geta gengið úr skugga um hvers konar vinnubrögð hann hefur verið að ástunda í þessum sal í skjóli þinghelgi.