Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir, hv. þm., að sú ríkisstjórn sem situr í landinu og stjórnarmeirihlutinn hefur trú á þessu máli og hefur trú á því að það gangi upp. En hv. þm. hefur enga trú á málinu og vill nota öll rök, alveg sama hvaða rök það eru, til þess að koma í veg fyrir að þetta verði gert. Hv. þm. dregur fyrst og fremst upp neikvæða hlið á málinu og byggir á einhverjum útreikningum sem er ekkert hægt að framkvæma fyrr en búið er að semja. (Gripið fram í.) Hv. þingmenn vita að sjálfsgöðu að þannig fara menn ekki í samninga. Ég þakka guði fyrir að hv. þm. verður ekki í samninganefndinni.